undir traðarhyrnunni

tröð

11.01.2012 23:33:25 / disahrolfs

Gleðilegt nýtt ár, 2012

Nú held ég bara að enginn í minni fjölskyldu né vinir skoði bloggið mitt lengur.  Ég hef verið allt of mikið, eða þannig, á fésinu.   Ég sakna samt þess að halda ekki úti svona einskonar frétta-dagbók fyrir mig og ykkur. 
Katrín og Co er flutt í Víkina og Helgi er í Sjúkraþjálfaranáminu í HÍ.  Við Palli héldum jólin hátíðleg fyrir sunnan aftur þetta árið af því við ætluðum að mæta í 90 ára afmæli mömmu minnar en sú gamla veiktist svo hastalega í enda nóv og var þar af leiðandi lögð inn á sjúkrahús 5 des. og er enn ekki alveg orðin góð.  Það komu 2 bakslög í bataferlið en allt er þetta að ganga upp.  Sú gamla borðar og er í þjálfun og er minnið allt að koma aftur. Það kom smá bakfall í það.  
Við Palli komum aftur vestur 27 des.  Við þorðum ekki annað en að vera í samfloti með Katrínu en hún var á leiðinni vestur á skóda  ;) og snjór og hálka um allt þá.  Allt gekk vel.
Tvíburarnir eru komin í leikskóla hér og eru bara þokkalega ánægðir að ég held.  Smá aðlögunartími.
Það sem af er árinu er ég búin að vera með bullandi kvef og fékk ég beinverki líka.  Meiri óþverrinn.  Enginn annar  fékk það og er enn eftir í hausnum hel.....ho.... oj :s 

bestu kveðjur og vilji þið vera svo góð að setja á ykkur endurskynsmerkin og mannbroddana svo Helgi þurfi ekki að taka á móti ykkur á bæklunardeild Borgarspítalans. Pleeeeese

Bless og hafi þið að sem allra best.
Dísa

» 0 hafa sagt sína skoðun

05.11.2011 01:51:46 / disahrolfs

Kæru fjölskylda og vinir.

Ég er eiginlega alvega að verða búin að fá nóg af þessari facebook-síðu hjá mér.  Þaðð er stundum hægt að kommentera hjá vinum og stundum ekki og er það alveg óþolandi að geta ekki skrifað neitt þar inn á, stundum í marga daga.  Þetta er ekki tölvunni að kenna því ég fékk 2 nema í heimsókn og það sama var hjá þeim hér í Bolungarvík og Ásta segir að þetta komi fyrir hjá henni annað slagið.
Héðan er allt gott að frétta og allir við hestaheilsu og  takk fyrir það.  Í dag er bara ekkert veður en maður finnur nú fyrir því hve birtan hopar fyrir myrkrinu og er farið að dimma upp úr kl 5 á daginn.  
Palli komst loks á sjó eftir 5 daga brælu og gekk þeim bara vel svo þeir bræður ætla að reyna aftur á morgun, laugardag, sem þeir fara annars ekki alla jafnan og ég ætla að sitja í Drymlu ef einhverjum mundi detta í hug að kíkja inn. Það er svo sem lítið að gerast í þeim málum en það er bara eins og þjóðfélagið er í dag.. fólk gertur ekki leift sér neitt aukalega vegna peningaskorts og skilur maður það mæta vel.  
Bara að kaupa í matinn fyrir 2 hér í Samkaup er dýrt.  
Rafmagn hér er dýrt.
Afnotagjöld af síma og neti er Dýrara en ég nota.
Eldsneyti er dýrt.
og það sem meira er að það er ekkert ódýrara að sauma/prjóna föt á krílin okkar.

Allt í einu rámar mig að ég hafi skrifað þettað áður, það má alveg vera.   Kanski bara svartsýnisraus í mér.

jæja en eitt mjög svo alvarlegt raus...... 
Munið eftir endurskynsmerkjunum.  Alveg lífsnauðsynlegt að sjást í myrkrinu, að ég tali nú ekki um þegar einhverjum dettur í hug að slökkva á ljósastaurum.

bestu kveðjur og hafið það gott kæru vinir
Kveðja 
Dísa

» 0 hafa sagt sína skoðun

19.09.2011 23:23:28 / disahrolfs

undir Traðarhyrnunni ..

 hefur heldur betur legið í dvala og er ekki enn vöknuð, allt of mikið áreiti sem hrjáir hana, eða þannig.
Ég hlýt að vakna til lífsins þegar um hægist og ekki eins mikið að gera síðar í vetur.

Elsku bestu farið vel með ykkur og munið endurskynsmerkin.  Sjáumst í myrkrin;)

Kveðja Dísa


» 0 hafa sagt sína skoðun

22.08.2011 22:33:43 / disahrolfs

Nú er komið Haust..

.eða þannig.  
Mikið búið að vera í gangi hjá okkur gömlu í sumar.  Helgi bjó hjá okkur í sumar meðan hann var að vinna á sjúkrahúsinu á Ísó. og svo bara var Katrín og Tvíbbarnir og Steini og Inga Rós og Börnin hennar hjá okkur mis lengi af og til í júlí og ágúst.. 
Stanslaust grill þegar viðraði og vaska upp og þvo þvott og skipta á rúmum og passa og bara þjónusta frá A-Ö... ;) Komið gott.  Held bara að ég sé komin með bogið bak =) ég verð að fara í íþróttahúsið og fara í tegingar til að rétta úr mér.  Hef llítið verið í Drymlu í ágúst.  Bara ekki getað vegna anna við að stjana við fólkið mitt,  það stjanar vonandi við mig þegar ég heimsæki það  :haha:

Palli byrjaði að róa í dag og er frekar þreyttur eftir strembinn dag.   Það fiskaðist ágætlega.  Ég byrjaði haustþrifin í dag og tók mig til að þurka vela af eftir rykugt sumar.
Heyrði frá einum bílstjóra sem er að vinna í Garðinum að rykið hefði verið svo mikið að hann hélt bara að við værum rykug upp fyrir haus og ætum bara ryk,  því mökkurinn hefði fokið yfir hjá okkur  þegar þeir voru að keyra um garðinn .:|

Jæja ætla að fara og hvíla mig.  Farið varlega í myrkrinu og munið eftir að setja endurskynsmerkin á okkur öll, sérstaklega börnin sem eru að byrja í skólanum.:::d

Bestu kveðjur til ykkar allra
Dísa

» 0 hafa sagt sína skoðun

23.06.2011 00:00:48 / disahrolfs

Sjávarútvegsmótaröð Vestfjarða í golfi er byrjuð.

Alltaf gaman að heimsækja Partó og Bíldudal en þar byrjar þetta allt.  Golfmótin eru 7 og er besta skor tekið saman í 5 af þeim og gefin stig sem telja. Loksins fengum við gott veður en samt var smá kaldi inn á Völlinn á Patró. en algjört logn undir kvöldið.  Alveg yndisleg :s

 Ekki verður mikil þátttaka hjá okkur því Palli fékk brjósklos og er ekki í góðu standi til að spila golf.  Við fórum samt um sl. helgi og spilaði ég í báðum mótum en Palli reyndi á Patró og gat spilað 14 holur og bara mjög vel en svo varð hann að hætta.  Á Bíldudal þá var hann Caddy hjá mér fyrri hringinn og hluta úr seinni. :lol:    Ekkert verður úr að við höldum áfram því næst þegar verður 2 daga mót í röðinni  þá verðum við á ættarmóti svo við missum svo mikið úr og svo kemur smáfólkið og svo bara fáir til að starfa í Drymlu, handverkshúsinu, svo ég verð eitthvað þar í sumar. Við Ásta höfum verið að skiptast á að vinna þessa vikuna.  Magga Ó. er farin til Grikklands.  Emilía dóttir hennar er að keppa á Ólympíuleikim fatlaða, Special olympics, þar og eru foreldrarnir að fylgja henni eftir.  Ég óska henni og vinkonu hennar frá ísafirði alls hins besta :d

 Annríkt sumar frammundan og ætla ég rétt að vona að það fari að hitna í veðri því ég finn fyrir gigt og er þá ekki alveg í lagi, Trublar mig  svolítið.:$  En samt.  Þetta er svo skemmtilegt og bara gaman að geta verið heimavinnandi enn sem komið er.

Elsku bestu nú er komið að hvíldartíma svo góða nótt og vonandi gengur okkur allt í haginn.

Bestu kv.
Dísa 




» 0 hafa sagt sína skoðun

05.06.2011 13:41:20 / disahrolfs

Sjómannadagurinn.

Sjómannadagurinn hér var alveg ágætur held ég bara.  Ég fór með Didda og Ingibjörgu og Kartínu á matinn i Félagsheimilinu og var alveg ágætis matur. Ég er svoddan sósukelling og fanst mér vanta aðeins meiri sósu á Kjötið, annars allt hið fína.  Veislustjórinn var nokkuð góður og reytti af sér brandara um fólk á svæðinu við góðan fögnuð.

Bless í bili.
Kata og Steini í heimsókn með tvíburana.

kv.
Dísa

» 0 hafa sagt sína skoðun

02.06.2011 00:59:25 / disahrolfs

Sólin og hitinn!!

Hvar eru þau?  Hann hitinn og hún sólin hafa ekki sótt okkur heim að neinu ráði og sakna ég þess alveg óskaplega mikið.  Það er alla daga svona haust veður. Kaldi í lofti og súld í fjallatoppum og bara lopapeysu veður.  Oft hefur verið kalt í maí en sól og gott í skjóli en ekki núna.
Mig langar að fara á heitari slóðir, ég sem finnst svo gott að vera heima og breiða úr mér þar.

Katrín og Steini komu á ísó. í kvöld.  Þau gista þar en Katrín kemur til okkar á morgunn með tvíbbana.  Segi frá þegar þau eru búin að vera hér, eftir viku  eða svo;)

Loksins er Palli hættur að róa og þá er að þrýfa bátinn og mála. Enginn kvóti til  en kemur væntanlega eitthvað í ág/sept. ef ekki verður búið að taka af þeim þann kvóta sem þeir keyptu á sínum tíma :s

Helgi vinnur í sjúkraþjálfuninni á ísó. og líkar bara vel.

Næst á dagskrá hiti og sól, Takk fyrir


Bestu kv. Dísa


» 0 hafa sagt sína skoðun

31.05.2011 00:37:46 / disahrolfs

Mín skoðun.

Ég hef svolítið verið að fylgjast með umræðunni í þjóðfélaginu og er ekki alveg sannfærð um allt þetta ágæti sem margir leggja til málanna, m.a. ráðherrar og þingmenn. 
Í umræðunni hefur verið mikið talað um "læknadóp" svokallað. 
Fyrir mörgum árum þá var okkur sagt að læknisskýrsla okkar væri öll í tölvuformi og við þyrftum ekki að fá eintak til að fara með til annara lækna sem við leituðum til, en hvað kemur upp á daginn.  Það er ekkert í tölvunni sem læknirinn getur sótt fyrr en 2 vikum eftir að við vorum hjá honum.  Stór galli þarna. Persónu vernd er borið við.
Ef ég labba Laugarveginn þá sést  ég,  alveg örugglega, á nokkrum myndavélum.  
Ef ég keyri of hratt á ákveðnum vegum landsins, þá lendi ég alveg örugglega á myndavélum lögreglu.  
Mér finnst svo ótal margt sem er ekki að ganga upp.  Það vantar alveg tilfinnanlega að stýra stjórnsýslunni á beinu brautina.
Það verður aðeins að pæla í hvernig við viljum haga uppeldi á afkomendum okkar. 
Byrjum á uppbyggingu heima fyrir og að ég tali nú ekki um þar sem eru erfiðleikar á heimilum, en búum þá ekki til.
 Eftir hrun hefur verið flótti fólks af landi brott.  Ríkisstjórnin  vill ekki ræða  þau mál. Feður fara erlendis í vinnu til að framfleyta konum og börnum hér heima og jafnvel fjölskyldur flosna upp  og svo bara óánægja með að geta ekki komist neitt, og börnin, þau lenda á milli í togstreitu foreldra því enga vinnu er að fá hér á landi.
Boð og bönn gera engum greiða.  
Greiðið úr óörygginu, þá kanski verður líft hér á landi.  Og allra síst, að bera okkur saman við norðurlöndin hvað varða skatta, það er ekki hægt því við erum ekki með þær tekjur sem fólkið hefur þar.

Ég bið að heilsa og vona bara alls hins besta fyrir okkur öll því Stjórnsýslan sem er við völd hefur takmarkaðan áhuga.

Blessbless
Dísa 


 

» 0 hafa sagt sína skoðun

28.05.2011 09:53:58 / disahrolfs

Maí að lokum..

Hæhæ öll sömul.  Nú er sko heldur betur letin í mér í vor.  Mér er alltaf svo kalt því það hitnar ekkert í lofti úti ;/  Sólin hér hefur verið með minnsta móti í mai.  
Ég svo sem var ekki heima í byrjun mánaðarinns svo ég get kanski ekki kvartað.  Við fórum í Luxusferð til Lux og dvöldum í Moseldalnum í viku og í þessu æðislega veðri og hita. Yndislegt.
Nú er snjórinn farinn að mestu leiti og hægt að setja út sumarblóm sem ég keypti og ætla ég sko ekki á leifa rollunum að komast í þau.  Ég ætla sko að bögga bæjaryfirvöld ef þær birtast í bæjarlandinu. 
Vélavinnan við garðin er í fullum gangi og hávaði frá þeim langt fram á kvöld og á laugardögum líka. Það er veriða að sprengja annað slagið og bregður manni við þegar húsið hristist. Í hvert skipti sem þeir slétta og ganga fra´þá heldur mað að þeir séu að enda en þá keyra þeir nýju moldarlagi ofan á.  Nú er barasta komið miðlungshátt fjall hér fyrir ofan og erum við hér upp undir garði alltaf meira og meira undrandi hvað á þetta endar eiginlega.8|
Við erum komin á fullt í golfið og gengur það þokkalega hjá mér.  Vantar bara æfinguna og svo væri gott að fá smá hita líka.  Erfitt að vera í kuldafötum í golfi og loppna putta:lol:
Best að koma sér í betri fötin.  Ætla með Ásku í jarðaför hjá mömmu Möggu félaga, sem féll frá í síðustu viku og ætlum við að mæta á staðinn í virðingaskini.  
Palli fór í golf með formanninum, það er að segja ef hann mætir,  hann er svo gjarn að glleyma sér:$
Helgi fór í gær á Patró til fjölskyldunnar sinnar þar. Allt í gúddý þar á bæ að ég held:d

Jæja Bestu kveðjur til ykkar og við verðum í sambandi. 

Kveðja Dísa

» 1 hafa sagt sína skoðun

01.05.2011 19:56:55 / disahrolfs

Góða verðrið er...

.. á leiðinni, svo segir veðurspáin;).
Það er sko búið að vera nóg að gera undanfarið.  Akkúrat núna þegar það er blíðu veður og Palli spilar golf á hverjum degi og snjór er yfir öllu á höfuðborgarsvæðinu og ég sit inni:s 
Ég var svo dugleg í golfinu úti á Spáni að ég fékk hressilegt tak í bakið síðasta daginn og það hefur ekki verið auðvelt að losna við það.  Verkurinn jókst náttúrulega við ferðalagið heim til íslands og svo aksturinn hingað vestur svo það tekur lengri tíma að ná sér en þetta batnar allt fyrir rest.  Fúlt að sitja inni í góða veðrinu.. 
Helgi og Steini fá vinnu á Ísó í sumar svo það verður smá hluti fjölskyldunnar hér í heimahögum en ekki ungarnir sem meira gaman er af;)  eða svoleiðis en þau koma seinna í sumar.
Jæja elsku bestu, þá er að hreyfa sig eitthvað svo ég liðkist aðeins í bakainu og bið ég ykkur vel að lifa.
bestu kveðjur
Dísa

» 0 hafa sagt sína skoðun

29.03.2011 22:33:30 / disahrolfs

Komið að því að spýta í lófana ;)

Já nú er sko komið að því að spýta ærlega í...  Framundan er mikið að gera og ef ég ætla mér að hafa nóg af lopapeysum á borðinu í Drymlu fyrir ferðamenn þá verður sko setið við. Ásta gerir flottar Jakkapeysur  sem hún prjónar fram og til baka en ég heilar og nú vantar rennilásapeysur hjá okkur og ég er í tilraunum og er að prjóna heila peysu með litlum sjalkraga.  
Stefnan hjá okkur gömlu er sett á Spán og ætla ég að rifja upp golfið 8| Gott að veta úti í hitanum og leika sér í golfi. Palli þarf þesss ekki hann er alltaf góður.
  Ég er eiginlega golfkella á niðurleið en prjónakella á uppleið, eða svoleiðis :$  En það er alltaf gaman að hafa eitthvað fyrir stafni á daginn á Spáni.  Nenni ekki að liggja í sólbaði 8)  Svo eftir golf fær maður sér einn kaldan og klúbbsamloku og býður svo eftir kvöldinu í göngutúrum eðað sólbaði  og prjóna kanski smá fyrir svefninn ;)  Ég ætla samt að kaupa mér sundbol, ég hef ekki átt svoleiðis í fjölda ára.  Sá sem ég átti var lagður á hilluna og svo þegar ég tók hann fram þá datt hann í tætlur ....

Krakkarinr okkar ætla að vera á ferðinni um páskana svo við dundum okkur bara 2 í golfi eða svoleiðis og borðum góðan mat ef við nennum ;) 
Á páskunum verðum við með opið í Drymlu og það verður sko fjölmenni hér á svæðinu í gistingu vegna "Aldrei fór ég suður" og vonandi kíkja einhverjir til okkar:d það er svo gaman...

Jæja ég ætla að hætta og bestu kveðjur til ykkar og gangið hljótt um gleðinnar dyr..
Kveðja Dísa



» 0 hafa sagt sína skoðun

12.03.2011 22:37:01 / disahrolfs

Gaman, gaman í Bolungarvík

Katrín og Co. komu í heimsókn vestur fyrir 3 vikum og nú loks setti ég inn myndir frá þeirri komu.  Voða gaman hjá okkur og bara nóg að gera alla daga.
Krakkarnir höfðu gaman af og létu þau óspart í ljós það sem þau vildu eða vildu ekki. Amma keypti eina snjóþotu svo þá voru til 2 og gátu þau rennt sér eða verið dregin eins og þau vildu, eða þangað til þau sögðu gott.  Fullorðna fólkið rak upp stór augu og bara, óvanalegt að börnin segi til hvenær sé komið nóg8|
Jæja hætt í bili.

Bestu kveðjur og ég reyni að vera í bandi.
Kveðja Dísa

» 0 hafa sagt sína skoðun

15.02.2011 00:20:06 / disahrolfs

Fjölskyldan..

Hæhæ, allir ættingjar og vinir. 
´Eg er ennþá heimavinnandi því ekki er nein vinna í boði fyrir kellur á mínum aldri hér.  Svo til að vera ekki með neinn "bölmóð" eins og  Velferðarráðherra vor nefnir svo oft í sinni umfjöllun um stjórnmálin, þá reyni ég eins og ég get að dunda eitthvað við að prjóna eða sauma eða í sjálfboðastarf.  Það kemur nú lítið inn fyrir það en sköpunargleðin fær útrás.:$
 
Palli minn er á sjó þegar viðrar og/eða leigukvótinn er á viðunnandi verði.  Það þýðir að ekki þurfi að borga með aflanum.  Stundum þurfa sjómenn nefnilega að borga olíuna ef verð aflans er ekki hagstætt, þá er innkoman í mínus.  Þetta kemur hvergi fram í umræðunni um kvótamálin.
 
Katrín og Steini koma vestur á miðvikudaginn og Tvíburarnir líka.   Hlakka mikið til.:haha:

Helgi var á Patró á helginni.  Hann fylgdi Ingu Rós og guttanum hennar vestur og fóru þau með Baldri yfir Breiðafjörðinn.  Allt gekk vel og hann fór sömu leið til baka í gær, sunnud. og lendir í snjókomu og skafrenningi í Borgarfirði og alla leið að Hvalfjarðargöngum.  Fyndið :haha::haha:
Iðulega keyrum við út úr svona veðri þegar við förum að vestan og inn í bjartviðri en svona skiptist þetta.

Bestu kv. þangað til eftir helgina.  Set inn myndir þa´.
Dísa;)

» 0 hafa sagt sína skoðun

10.02.2011 00:26:25 / disahrolfs

Kvótinn og eiginkonur...

..þeir sem þurfa að búa við hann. Ég sem eiginkona Sjómanns til 32 ára  hef nánast í öll þessi ár verið kvíðin yfir hverri sjóferð sem minn maður hefur farið í.  Ég reyni að líta fram hjá þessu svo hægt sé að "lifa", en þegar börnin okkar voru lítil þá stóð mér oft á tíðum ekki á sama og vildi að hann væri heima. 
Þannig er að það er ekki hægt að vera sjómaður við fiskveiðar hér við íslandsstrendur, öðruvísi en að hafa/eiga kvóta.
Það skondnasta sem er er að stjórnmálamenn, margir hverjir, og aðrir landsmenn, vilja taka kvótann af mönnum sem hafa farið eftir þessum reglum og lögum sem sett voru á á sínum tíma.  Sjómenn voru skikkaðir til að stunda sjóinn mjög stíft ári áður en kerfið var sett á laggirnar ef þeir ætluðu að komast inn í þetta kerfi og fóru menn í nánast öllum veðrum til að sækja sér björg í bú og til að skaffa atvinnu í landi, vegna þess að það taldi hvað menn veiddu mörg tonn, út á það gekk úthlutunin. 
Mönnum var síðan skammtað hvað þeir máttu veiða mikið og ekki nóg með það heldur ef þeir veiddu skammtinn sinn á 6 mán. þá var enga vinnu að hafa restina af fiskveiðiárinu og ef þeir veiddu of mikið var tekið af þeim aflinn og veiðafæri + sekt. Hvað er rangt við þetta?
Mér þætti gaman að vita hvernig þessu fólki fyndist ef því væri skamtað lífsviðurværi.  Vinna í 6-7 mán. og engin innkoma restina af árinu.
Við þurfum miklu betri stjórnun á þessu öllu.  Það þarfa að skipuleggja þetta á þann hátt að hægt sé að koma með dýrmæta afurð að landi og vinna hana hér heima áður en hún er flutt á erlendann markað og skapa mikil verðmæti fyrir allt þjóðarbúið.  Það eru nefnilega svo margir sem koma að þessu ferli, það eru ekki bara sjómennirnir sem veiða fiskinn. Það eru Hafnarvogir (hringin í kring um landið), Slægingarstöðvar(fiskurinn slægður), Frystihús/Fiskmarkaðir (fiskurinn unninn eða seldur)  Flutningamiðstöðvar (bílar sem flytja fiskinn) Flugvélar/skip ( fiskur fluttur erlendis) Flutningamiðstöðvar(sem okkur kemur kanski ekki við erlendis). Þetta er ekki allt því svo er hin hliðin, það eru bankar og lánastofnanir, tryggingafélög, Verslanir með vinnufatnað, Skrifstofustörf, ræstistörf og svo margt, margt fleira að ef kvótanum væri kippt bara sisvona af útgerðum þá yrðu væntanlega einhverjir af ofantöldu atvinnulausir.

Jæja ég er búin að rausa nóg í bili.
En Munið eftir að sjást (endurskyn) og að gefa stefnuljós 8|
Bestu kveðjur og passið ykkur í myrkrinu
kv. Dísa

» 1 hafa sagt sína skoðun

23.01.2011 23:08:09 / disahrolfs

Ískand og handbolti!

Hvað er það sem gerir það að verkum að við erum svona húkkt af handbolta????
Ég horfi alla jafnan ekki á íslenskan handbolta lengur en ég fylgist alltaf með þegar landsliðið er að keppa og ég verð að fara frá sjónvarpinu ef eitthvað gengur ekki upp, að ég tali nú ekki um þegar leikurinn breytist í dómaraleik og við fáum ekki að vera með í honum.  Ég veit svosem að þeir sjá ekki það sem við sjáum í sjónvarpi en þegar leikir fá ekki að fljóta áfram vegna einhvers sem engin er alveg með á , þá finnst mér of langt gengið...... og verð ill.  Svona er þetta bara og svo fjarar það út fram að næsta leik.

Bestu kveðjur
og í öllum bænum munið eftir endurskinsmerkjunum nú í dimmasta skammdeginu svo við sjáumst.:d
Kv. Dísa

» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 15